Vá það er langt síðan síðast......
Við erum að tala um meira en ár frá því að ég bloggaði síðast og er ég nokkurn vegin viss um að fólk sé löngu hætt að nenna að kíkja á síðuna mína og athuga hvort ég sé orðin eitthvað duglegri við þetta blogg dæmi.
Máið er bara svo einfalt að þegar ég sest fyrir framan tölvuna og ætla mér að skrifa eitthvað voða sniðugt og segja frá öllu þessu skemmtilega sem er að gerast í mínu lífi að þá bara gerist ekkert.
Ég einfaldlega bara sit og horfi á lyklaborðið og veit ekkert hvað ég á að skrifa svo bara gefst ég upp og hugsa með sjálfri mér æji ég geri þetta bara á morgun..........
Ef einhver les þessa færslu mína ertu þá með einhverjar hugmyndir hvernig ég losna við þessa blogg fælni? Veit samt ekki hvort þetta sé fælni en við skulum þá kalla þetta blogg stíflu. Öll ráð eru vel þegin.
Hvað gerið þið hin þarna úti sem eruð svona dugleg að blogga??????
Kveðja
Ein í vafa........

1 Comments:
Velkomin aftur Íris !!
jú ég kíki sko alltaf reglulega inná til að tékka hvort mín sé á lífi hehe.
en ég held að rúl númer eitt sé að ekki halda að maður sé að fara að skrifa ritgerð, bara svona skrifan nokkrar línur en það er enginn að búast við ævisögu þinni eða hvað þú gerðir á 5 mín fresti yfir daginn... Hresst og laggot!
Ha det så jätte bra !!!
4:30 AM
Sendu inn athugasemd
<< Home