Líf.............
það er eitthvað sem ég á ekki mikið af þessa dagana er að vinna til 7 og 8 á kvöldin , það er gjörsamlega allt að verða crazy í fyritækinu jólin að koma og fyritækið að flytja , alveg valin besti tími ársins til að flytja. Starfið mitt er að flytja til Keflavíkur þannig að 28. desember byrjar mín að vinna í Keflavík og verð að vinna þar á daginn , ég verð nú að játa það að ég hlakka nú bara svolítið til, kynnast nýju fólki og sonna þetta er bara spennandi. En yfir í eitthvað allt annað þá fór ég í heimsókn til hennar Jónínu í gær jújú ég kem inn í stofu og sé þetta líka fína jólatré en VÁ þetta var alveg minnsta jólatré sem ég hef séð svo lítur hún á mig voðalega ánægð og segir: Hvernig líst þér svo á hana Írisi?? haldiði að gellan hafi ekki skírt jólatréð í höfuðið á diggasta lesanda bloggsins hennar. Ég get nú ekki sagt að ég hafi verið eitthvað sérstaklega ánægð en ég gat nú ekki annað en hlegið að þessu því let´s face the fact´s það er nú ekki að ástæðulausu sem ég geng í hábotna skóm, sem verður svo til þess að mar snír sig á báðum ef mar misstígur sig og það er engin lygi..........
jæja búin í bili
Túrúlú

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home