Jæja fólkið
Það er víst eitthvað verið að dissa mig fyrir að blogga aldrei og ættu þeir sem það diss eiga að fara hugsa sinn gang og troða fleir jólakúlum á jólatréð sitt eða þurrka af undir rúmi eða hillum í staðinn fyrir að dissa mig og mitt blogg og hananú (sagði hænan og lagðist á bakið). Það er eitthvað verið að reyna að fá mig til að trúa því að jólin séu að koma en ég er ekki alveg að kaupa það ég prófaði meira að segja að setja skóinn út í glugga til að athuga hvort þetta væri satt en það bara gerðist ekki neitt ég fékk bara ekkert í skóinn (allavega ekki þann skóinn ;->)
Haldiði að mín hafi ekki bara dottið í lukkupottin síðasta föstudag og unnið jólatré sem ég by the way veit ekkert hvað ég á að gera við og veit ekki hvað það er stórt því ég er ekki búin að sækja það mér var bara sagt að fara í krónuna í mosó og finna eitt þar og viti menn kannski mar reyni bara að finna eitt sem er jafn stórt og risin hún Jónína og gefa henni það því hún var eitthvað að kvarta yfir því að sitt væri svo lítið að hún kæmi bara 10 jólakúlum á það, hún ætti þá allavega að geta troðið fleirum á það jólatré ef það er jafn stórt og hún múahahahaha
En jæja ég ætla að hætta þessari vitleysu og halda áfram að vinna þetta ætti að duga í bili fyrir þessa dissara eða hvað segir þú JÓNÍNA.........
That´s all
Túrúlú

1 Comments:
Sko elskan mín, ef jólatréið þitt væri jafn stórt og ég, myndi það standa á Austurvelli, ekki í stofunni þinni. :0Þ
7:18 PM
Sendu inn athugasemd
<< Home