GLEÐILEG JÓL
Ég vil bara nota tækifærið og óska ykkur öllum Gleðilegra Jóla og farsældar á nýju ári og þakka ég fyrir allar samverstundirnar á árinu sem er að líða.......með öðrum orðum ég var ekki dugleg að skrifa jólakort í ár. Þessi jól eru nú bara búin að vera mjög góð , fór austur til pabba á þorláksmessu og er þar ennþá , búin að borða fullt af góðum mat og fékk alveg fullt af pökkum t.d dvd spilara frá systur minni sem ég var mjög ánægð með og borðgrill frá pabba , Bat og litla bróðir (sem by the way er sætasti strákur í heimi) svo fékk ég lítin bakpoka , cd (Ragnheiður Gröndal) sængurver , kertastjaka , náttföt og fleira og vil ég bara segja takk kærlega fyrir mig þetta kemur sér allt að mjög góðum notum..........
Svo er jólaboð hérna hjá pabba á morgun og kemur þá öll famelían hans hingað austur....haldiði að það verði ekki stuð á bænum.............svo eftir það brunum við systur í rvk og hver veit nema mar skjóti á sig nokkrum...þá sjaldan mar lyftir sér upp....... , það verður nú samt ekkert hevy þar sem vinnan kallar daginn eftir......en hver veit...
Ja mar spyr sig..........
see ya

2 Comments:
Gleðileg jól Íris mín. Knús
9:57 AM
eru bara endalaust jól hjá þér???
1:30 PM
Sendu inn athugasemd
<< Home