Og nú er komin þriðjudagur
Og held ég að þetta eigi eftir að vera svolítið langt blogg!!
Og þvílíka helgi hef ég bara ekki upplifað ég get svarið það. Fór semsagt í sumarbústað og var lagt af stað frá Essó uppá höfða kl:20.30 á föstudag og var þá ferðinni heitið í Varmahlíð þar sem við hópurinn vorum búin að leigja bústað alla helgina. Við vorum komin á leiðarenda kl:23.30 ca og var þá bara strax skellt í sig og farið í actionary stelpur á móti strákum og auðvitað möluðum við strákana enda erum við líka bestar. Þeir voru nú ekkert sérstaklega sáttir við það frekar tapsárir. Svo var farið í pottinn og haldið áfram með taumlausa gleði. Á Laugardaginn var vaknað svona aðeins í seinni kantinum skellt sér útí bíl og brunað á suðarkrók í smá menningarferð ef menningarferð má kalla kíktum í kaupfélagið og rúntuðum aðeins um bæinn og hneyksluðumst á litargleðinni á húsunum svo var bara haldið í bústaðinn aftur og glápt á Shrek 2 sem er alveg snilldar teiknimynd og svo var komið að hápúnkti kvöldsins sem var Murder Mystery leikur og voru þá allir búnir að fá úthlutað hlutverk sem við áttum að vera og fékk ég hlutverk Jaqulina Perry og átti ég að drepa systur mína Mariella Harrison sem ég virkilega hataði vegna þess að hún fékk alla athyglina þegar við vorum yngri og hún var líka búin að sofa hjá manninum mínum Daniel Perry fyrir 20 árum síðan og orðið ólétt eftir hann en því komst ég ekki að fyrr en leikurinn var næstum búin því þá kom Harold Harrison sem var maðurinn hennar Maríellu og sagði mér að hann gæti ekki átt Lucy dóttur þeirra því hann væri getulaus en fyrr í leiknum var ég búin að komast að því að Johnatan sonur minn og Lucy dóttir systur minnar voru í leynilegu ástarsambandi en það sem þau ekki vissu var að þau voru samfeðra þetta var eins og versta sápa og ég semsagt drap systur mína með því að eitra fyrir henni með því að setja einhverskonar eitrað "jöklasalat"sem ég hafði náð í fyrir utan þetta hótel sem við áttum að vera á og setti það í salatskálina. Þetta eitraða "jöklasalat" hafði engin áhrif á okkur hin því hún var með veikt hjarta og dó hún stuttu seinna á mjög dramatískan hátt sem var bara fyndið því það vissi auðvitað engin að hún myndi deyja og ruglaði þetta plönin hjá mörgum. Við vorum öll búin að fá einhverskonar takmörk sem við áttum að ná á meðan leiknum stóð þar á meðal að komast að því hver hefði drepið Maríellu og hvort John sem var semsagt dauður þegar leikurinn byrjaði hefði verið drepin eða hvort það hefði verið slys. Ég veit það er ruglingslegt að lesa þetta en belive you me þetta er bara snilldar leikur og mæli ég eindregið með þessu. Leikurinn stóð yfir frá 19.30 til 00.40 og vorum við öll í karakter á því timabili svo þegar leikurinn var búin þá settumst við öll niður og skáluðum ekki má gleyma því og ræddum það hver við héldum að hefði verið morðinginn. Svo eftir þetta allt saman var bara stjórnlaus gleði og farið í pottinn og notabene potturinn var fyrir 6 manns og vorum við 11 sem tróðum okkur í pottinn og var það frekar þröngt og bara fyndið og var svo bara djúsað fram eftir morgni með nonstop gleði og fullt af drykkjuleikjum.
Þetta var gjörsamleg skemmtilegasta helgi sem ég hef upplifað hrein snilld hef aldrei hlegið eins mikið.
Með þessum orðum ætla ég að kveðja að sinni.
Túrúlú

1 Comments:
Kúl. Hljómar ekkert smá spennandi
4:47 PM
Sendu inn athugasemd
<< Home