Jæja allir þið útí heimi hvar sem þið eruð!!!!
Ég biðst innilegar afsökunar á því hvað ég er ekki búi að vera dugleg að skrifa hef bara einhvernveginn gleymt því er nú reyndar ekki með tölvu heima þannig að ég verð að gera þetta í vinnuni og það er bara búið að vera kaos þar.
Fór út að borða með vinnuni síðasta laugardagskv. á rauðará og fengum við okkur öll matseðilinn sem vann food and fun keppnina geðveikur matur hef bara ekki borðað eins góðan mat og rauðvinið sem við fengum með klikkað gott og svo var fylleri á eftir í boði DHL bara gaman (",)
Er svo að fara á árshátið í vinnuni 28 mars á hótel flúðum og svo um hvítasunnu helgina förum við til lommel í belgíu á fótboltamót DHL út um allan heim og verður það örugglega mjög gaman.
Hefur einhver ykkar sem búið á klakanum hitt Stínu eftir að hún kom heim???
Hei ekki má gleyma að svo verður farið á Roskilde festeval í sumar (geggjað)
búin að kaupa flugmiðann út en er ekki búin að kaupa miðann inn á festivalið verð visst að gera það á næstunni.
Jæja ætla að halda áfram að vinna er að næla mér í nokkra yfirvinnu tíma
Túrúlú í bili.

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home