Welcome 2 my world

þriðjudagur, febrúar 10, 2004

Halló snúllurnar mínar

Ég veit ég veit ég skulda blogg!!!! hef bara ekki haft tíma til að skrifa neitt bara búið að vera dramatík og vesen síðast liðnu vikur. Hafði nú samt tíma til að skella mér á grímuball á Hellu og var það bara aldeilis ágætt ball var nú samt ekki í grímubúning en það voru nú þó nokkrir sem mættu í grímubúning þar á meðal Pálmi Sævar sem mætti klæddur eins og kóngur og vann titilinn besti búningurinn og fékk risa bjórflösku í verðlaun m.a.s hljómsveitinn var í grímubúning og hélt hún uppi góðri stemmingu að mér fannst. Viti menn ég skellti mér á skíði síðusta sunnudag í bláfjöllum með Heiðari frænda og Davíð ég var gjörsamlega búin að gleyma því hvað það er gaman að fara á skíði það var frekar kalt mar varð vel kaldur og útitekinn í framan.
Skellti mér líka í klippingu síðasta fimmtudag og er nú orðin vel stuttklippt aftur með gylltar strípur mjög flott og dýr klipping fannst mér en alveg þess virði og löngu tímabært fannst mér.
En jæja nóg í bili.

Túrúlú