Welcome 2 my world

þriðjudagur, janúar 27, 2004

Heisan allehopa

Jæja þá er kominn þriðjudagur ég get svarið fyrir það dagarnir þeir fljúga áfram mar er ekki fyrr búin að snúa sér við þá er komin helgi aftur.Fór á djammið á föstudaginn með Arnhildi og Sigrúnu vinkonu hennar sem kom oft með henni austur hérna í denn þið munið örugglega eftir henni. Við skelltum okkur í bæinn á smá pöbbarölt og enduðum svo auðvitað á glaumbar og dönsuðum af okkur skóna þar rosa gaman það er mjög langt síðan ég hef dansað svona mikið.Ég veit ekki hvað það er en ég virðist laða að mér svertingja ef ég er einhversstaðar að dansa alveg ótrúlegt.
Smá skilaboð til Tinnu í Norge það er bara ekkért krassandi slúður sem ég get sagt þér ekki svo ég muni allavega ég skal reyna að fara lifa skemmtilegri lífi svo ég hafi eitthvað slúður handa þér (",) er að fara á Hellu næstu helgi kannski verður eitthvað smábæjar slúður eftir það.
Las á blogginu hennar Lilju í gær að hún ætlar að fara á þorrablótið á Hellu eru einhverjir fleiri sem ætla að fara?? Er mikið að spá í að skella mér.
Jæja nóg í bili mar verður visst að vinna líka

Túrúlú í bili (",)